Viðbúnaður vegna slasaðs gangnamanns
Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér svohljóðandi tilkynningu fyrir skömmu.:
“Um kl. 15:00 í dag fékk lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um slasaðan gangnamann innarlega í Eyjafirði. Ljóst var strax að um krefjandi verkefni var að ræða í brattri hlíð og voru sjúkraflutningar á Akureyri og björgunarsveitir í Eyjafirði kallaðar út sem og þyrla Landhelgisgæslunnar.
Verið er vinna að því að koma viðbragðsaðilum á vettvang.
Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.”
Segir í áður nefndri tilkynningu.