Viðbótareiningar settar upp við Krummakot
Stefnt er að því að hefjast handa við að setja upp einingar við leikskólann Krummakot í Eyjafjarðarsveit í næstu viku. Þær eru setta upp til að auka við rýmið í leikskólanum og brúa bilið þar til nýtt leikskólahúsnæði sem er í byggingu við Hrafnagilsskóla verður tekið í notkun.
Einingar sem áttu að fara í uppsetningu í sumar og verða tilbúnar við opnun leikskólans eftir sumarfrí urðu fyrir tjóni við afhendingu þeirra. Olli það umtalsverðum töfum á verkefninu með tilheyrandi óþægindum fyrir leikskólastarfsemina alla, starfsmenn, foreldra og börn.
Búist er við að nokkur tími fari í frágang við einingarnar þar sem koma þarf fyrir tengibyggingu á milli eininganna og núverandi leikskólahúsnæðis. Þá verða settar upp innréttingar og parket ágólf svo eitthvað sé nefnt. Hefur svo verið búið um hnútana að verkið vinnist eins hratt og mögulegt er þegar búið er að koma einingunum fyrir.
Ríkir mikil eftirvænting enda mun aðstaða leikskólans batna mikið með tilkomu viðbótarhúsnæðis.