Verkefni á Akureyri fá styrk frá Krónunni í fyrsta sinn

Krónan veitti 25 verkefnum og aðilum styrki og fengu tvö verkefni styrk á Akureyri. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem Krónan veitir slíka styrki á Akureyri enda mun ný verslun Krónunnar opna í bæjarfélaginu haustið 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 

Krónan hefur í ár úthlutað rúmum sjö milljónum króna úr styrktarsjóði sínum sem er ætlað að styrkja verkefni sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar. Verkefnin sem hlutu styrki á Akureyri eru eftirfarandi: 

·       Blakdeild KA á Akureyri, fyrir þjálfaranámskeið til að tækla einelti, samskipti, kvíða og fleira hjá börnum. 

·       KA og KA/Þór á Akureyri, fyrir handknattleiksdeild barna. 

Í ár bárust 111 umsóknir þar sem 25 þeirra hlutu styrk. Verkefni sem fengu styrk á landsbyggðinni voru 17 talsins og voru verkefnin átta á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Krónunnar, hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með uppgangi þeirra verkefna sem hafa hlotið samfélagsstyrki Krónunnar í gegnum árin.

„Við hjá Krónunni erum afar glöð með fjölda og gæði styrktarumsókna í ár og greinilegt að mikill metnaður er lagður í þau verkefni sem snúa að lýðheilsu og hreyfingu barna og ungmenna, sem og uppbyggingu í okkar nærsamfélagi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Það er okkur sönn ánægja að leggja þessum aðilum og verkefnum lið í þeirra vegferð. Eins er virkilega gaman að veita nú styrki á Akureyri í fyrsta sinn þar sem við munum opna okkar fyrstu verslun á Norðurlandi á næsta ári,“ bætir Ásta við.

Opnað verður fyrir umsóknir fyrir næsta styrktarár á heimasíðu Krónunnar 1. maí 2022. Umsóknarfrestur verður til og með 31. ágúst 2022.

Smellið gif

 

Nýjast