Veitingastaðurinn Eyrin lokar dyrunum

Aðalheiður og Guðmundur hafa ákveðið að hætta rekstri á Eyrin restaurant
Aðalheiður og Guðmundur hafa ákveðið að hætta rekstri á Eyrin restaurant

Veitingastaðurinn Eyrin Restaurant hefur verið lokað, í tilkynningu sem rekstraraðilar sendu frá sér í dag kemur fram ástæða lokunarinnar sé það rekstrarumhverfi sem Covid-19 heimsfaraldurinn hefur haft í för með sér. Það eru hjónin Guðmund­ur Ragn­ar Sverris­son og Aðalheiður Hannesdóttir sem ráku staðinn.

„Það er með sorg í hjarta sem við tilkynnum það að Eyrin Restaurant hefur verið lokað. Eftir frábærar viðtökur Akureyringa og annarra gesta frá því að við opnuðum haustið 2019 vorum við spennt fyrir því að bjóða upp á dýrindis veitingar við notalegt andrúmsloft í Menningarhúsinu Hofi til framtíðar. Hinsvegar eftir gríðarlegar áskoranir í kjölfar Covid-19 sem við reyndum að aðlagast eftir fremsta megni með dyggri aðstoð gesta okkar er það orðið ljóst að rekstur Eyrin Restaurant stendur ekki undir sér.

Eyrin Restaurant var rekinn af okkur hjónunum Guðmundi og Aðalheiði og voru flutningar norður yfir heiðar með börnum okkar fimm fyrirhugaðir og að allir myndu leggja árar í bát við að skapa framúrskarandi veitingastað á Akureyri. Eftir mikla íhugun höfum við því miður sætt okkur við að vegna áhrifa Covid-19 mun sá draumur ekki verða að veruleika.

Við viljum þakka ótrúlega góðar viðtökur og viðskipti við okkur, það hefur verið okkur ómæld ánægja að taka á móti ykkur síðastliðna 14 mánuði,“ segir í tilkynningunni.

Nýjast