Vegið að eðlislægu atferli kattarins og velferð hans
„Þetta mun setja marga kattaeigendur í erfiða stöðu, þar sem valið mun jafnvel standa á milli þess að aflífa gæludýrið sitt eða koma því á nýtt heimili utan bæjarins,“ segir í ályktun sem Dýralæknafélag Íslands hefur sent frá sér í tilefni af þeirri ákvörðun Bæjarstjórnar Akureyrar að endurskoða samþykkt um kattahald á Akureyri. Samkvæmt henni verður lausaganga katta í bænum ekki heimiluð frá 1. Janúar árið 2025.
Dýralæknafélaginu þykir sérstakt að svo hart sé gengið til verks, í stað þess að framfylgja þeim samþykktum sem þegar eru í gildi. Bent er á að líftími katta sé að meðaltali 14 til 18 ár, því séu sólarlagsákvæði um að bannið taki gildi eftir einungis rúm 3 ár allof stutt. Afar erfitt sé að loka kött inni, sem nú þegar er vanur að fara sinna ferða.
Fram kemur einnig í ályktun félagsins að kostir þess að umgangast gæludýr séu vel þekktir og þau geti aukið lífsgæði bæði hjá börnum og fullorðnum.
„Kettinum er eðlislægt að kanna umhverfi sitt og leyfa þeim að ganga frjálsum veitir þeim andlega övun og minnkar streitu hjá þeim,“ segir ennfremur. Utandyra geti þeir iðkað sína náttúrulegu hegðun eins og að klóra og merkja. Bent er á að sumir kettir sætti sig við að vera innikettir, sé þeir fleiri sem ekki höndli það, innilokun geti leitt til streitu og hegðunarvandamála vegna vanlíðunar, m.a. merkingar- og árásargirni.
Varðandi áhrif lausagöngu heimiliskatta á fuglalíf segir DÍ að engar skýrar vísindalegar sannanir séu fyrir því að lausagöngubann katta hafi jákvæð áhrif á fuglastofna. DÍ telji það mun raunhæfari lausn að taka á vandanum á annan hátt en með því að banna lausagöngu. Nefnt er að gera megi átak í að fækka villiköttum, auka fræðslu til eigenda katta um leiðir til að draga úr veiðigetu og útgöngubanni að næturlagi á varptíma fugla. „Með þessu er hægt að draga úr tjóni á lífríki án þess að hafa áhrif á velferð katta,“ segir Dýralæknafélagið og bætir við að það sé mat félagsins að með banninu sé vegið að eðlislægu atferli kattarins og velferð hans.