13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Útidyrahurð verður að ostabakka
Árið 1960 var nýtt skólahús tekið í notkun á Húsavík og fluttu þá bæði Barna- og Gagnfræðaskólinn í húsnæðið sem nú er elsti hluti Borgarhólsskóla.
„Í upphafi skólaárs var skipt um útidyr og -hurð í innganginum frá Borgarhóli. Þar er nú rafknúin skynjarahurð í stað gömlu tréhurðarinnar sem við teljum að hafi verið síðan 1960.
Efni sem til féll fór á smíðavinnustofu á Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík og í dag fékk skólinn ostabakka að gjöf sem þeir Ingólfur Árnason og Stefán Kjartansson unnu úr hurðinni. Bakkinn er því 60 ára gamall. Við þökkum kærlega fyrir þess sögulegu gjöf,“ segir á heimasíðu skólans.