27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Útgerðinni ekki vandaðar kveðjurnar hjá Framsýn
Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar fór fram í gær, 29. desember. Miklar umræður urðu um kjaramál og útgerðarmönnum ekki vandaðar kveðjurnar. Þar var talað um virðingarleysi útgerðarmanna í garð sjómanna sem náð hafi nýjum hæðum þar sem sjómenn hafa nú verið samningslausir í á fjórða ár.
Eftir fjörugar umræður var ályktun samþykkt samhljóða. Þar kemur meðal annars fram að krafa aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands sé skýr: Sjómenn fái inn í kjarasamningin ákvæði um að útgerðin greiði 3,5% viðbótarframlag í lífeyrissjóði sjómanna með sama hætti og launafólk á almenna vinnumarkaðnum hefur þegar samið um við atvinnurekendur.
„Jafnframt fái sjómenn sömu hækkanir á kauptryggingu sjómanna og aðra kaupliði og samið hefur verið um á almenna vinnumarkaðinum frá árinu 2019. Það er með öllu ólíðandi að kauptrygging sjómanna sé langt undir lágmarkslaunum á Íslandi en hún er í dag kr. 326.780,- meðan lágmarkslaun eru kr. 402.235,- samkvæmt kjarasamningi SGS og SA,“ segir í ályktuninni.
Þá segir að Aðalfundurinn skorai á samtök sjómanna að hefja undirbúning að aðgerðum gegn útgerðarfyrirtækjum, í samráði við aðildarfélögin, til að knýja á um lausn kjaradeilunnar milli sjómanna og útgerðarmanna. „Núverandi ástand og samningsleysi sjómanna á fjórða ár er ólíðandi með öllu og útgerðarmönnum til skammar. Það er ekki í boði að láta enn eitt árið líða án þess að gengið verði frá kjarasamningi við samtök sjómanna,“ segir í ályktuninni.