Ung kona fannst látin í íbúð á Akureyri

Ung kona fannst látin í íbúð á Akureyri í gær. Frá þessu er greint á DV.is . Bergur Jónsson, rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglunni á Akureyri segir í samtali við DV að málið sé í rannsókn. Konan var búsett í fjölbýlishúsi og samkvæmt heimildum DV eru íbúar í áfalli vegna málsins.

Konan var ung og átti tvö börn. Engum er nú hleypt inn í íbúðina og er hún innsigluð af lögreglu. Bergur segir í samtali við DV að verið sé að rannsaka mannslát. Spurður um hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað segir Bergur að rannsókn málsins muni leiða það í ljós en hún sé á frumstigi. 

Nýjast