Umferð um Vaðlaheiðargöng 36% meiri í desember samanborið við 2020

Vaðlaheiðargöng
Vaðlaheiðargöng

Umferð um Vaðlaheiðargöng í nýliðnum desember jafngilti 993 ferðum á dag að meðaltali en það er 36% aukning frá sama mánuði á síðasta ári samkvæmt upplýsingum frá Vaðlaheiðargöngum.

„Heildarumferð í desember í ár er sú mesta sem mælst hefur til þessa, hlutfall umferðar um Víkurskarðið var 8% eins og í fyrra en skarðið var lokað síðustu 4 daga ársins vegna ófærðar,“ segir á Facebooksíðu ganganna.

 

Nýjast