Um tímann og vatnið með Andra Snæ í Hofi

Um tímann og vatnið með Andra Snæ er gestasýning frá Borgarleikhúsinu og verður sýnt í Hofi þann 29. október. Bók Andra Snæs Magnasonar Um tímann og vatnið hefur vakið mikla athygli og sýning hans um verkið fékk standandi klapp í Borgarleikhúsinu þann 8. október. Högni Egilsson er með Andra á sviðinu og skapar hljóðheiminn í verkinu.

Um verkið segir: „Samkvæmt vísindamönnum mun jörðin okkar fara í gegnum breytingar á næstu 100 árum sem eru hraðari en áður hafa mælst, bráðnun jökla, hækkun sjávarborðs og breytt veðrakerfi. Allar þessar breytingar eru stærri en tungumál okkar og myndhverfingar geta höndlað, þær sprengja í raun skynjun okkar svo við heyrum bara suð. Andri Snær Magnason ætlar að hjálpa okkur að sjá gegnum suðið og skilja stærðirnar með því að blanda saman persónulegum sögum, vísindum, minningum og hugmyndum um framtíðina. Þannig vefur hann fyrir okkur söguþráð sem er í senn ævintýralegur, alvarlegur og kannski með vonarglætu í lokin.

Búðu þig undir ferðalag upp á Vatnajökul, við hittum Robert Oppenheimer, höfund kjarnorkusprengjunnar, leitum að uppruna lífsins og heyrum um frændann sem endurholdgaðist sem forsögulegur krókódíll áður en við förum á fund hjá heilögum manni sem lumar á svarinu við spurningunni um tilgang lífsins. Verkið fjallar á óvenjulegan hátt um mikilvægustu mál okkar tíma.“

 

Nýjast