Tveir sjúklingar á gjörgæsludeild SAk vegna Covid

Tólf eru inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri með Covid-19, tveir á gjörgæsludeild og annar þeirra í öndunarvél. Sjúkrahúsið er á hættustigi en mörg rauð flögg eru til staðar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sjúkrahússins              

Þá er greint frá því að töluverður fjöldi starfsmanna sé fjarverandi vegna Covid-19. Til að bregðast við því og til að tryggja mönnun bráðaþjónustu sjúkrahússins verði áfram takmarkanir á göngudeildaþjónustu og valaðgerðum.

„Í ljósi fjölda smita í samfélaginu og mönnunarvanda á sjúkrahúsinu er mikilvægt að halda áfram þeim smitvörnum sem í gangi eru á SAk. Engar breytingar eru því að svo stöddu t.d. varðandi takmarkanir á heimsóknum, grímunotkun, notkun á hlífðarfatnaði, þjónustu í mötuneyti eða þrif á milli sjúklinga,“ segir í tilkynningunni.

 

Nýjast