27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Þróa samsett leður úr afgangs fiskroði
Nýsköpunarfyrirtækið AMC fékk nýverið tveggja ára Sprota styrk frá Rannís upp á samtals 20 milljónir til að þróa fyrsta samsetta fiski leðrið á Íslandi.
Fyrirtækið er í eigu ungs frumkvöðla pars á Norðurlandi. Það eru þau María Dís Ólafsdóttir, lífverkfræðingur, og Leonard Jóhannsson, vélfræðingur. Áður hafði verkefnið fengið FRÆ styrk Rannís og vann titilinn Norðansprotinn í hugmyndasamkeppni síðast liðið vor.
Í framhaldi af keppninni tók teymið þátt í hraðlinum Vaxtarrými sem lauk fyrir skemmstu og er á vegum SSNE, SSNV, RATA og Eims. Verkefnið fékk nýverið endanlegt nafn og ber heitið Nanna Lín.
María segir að vinna hafi hafist síðast liðið vor en hugmyndin sé þó ári eldri. Nanna Lín er leður gert úr afgangs roði og mun lokaafurðin vera sterkt og gott leður í metravís. Með því að nýta hliðarafurðir til leðurgerðar má t.d. leysa ýmis gervi textílefni af hólmi og draga með því úr mengun og losun vegna þeirra. Varan er t.a.m. ætluð húsgagnaframleiðendum, bólstrurum og öðrum hönnuðum sem vinna með textíl. „Þetta er mjög stórt og spennandi verkefni sem við eigum fyrir höndum. Með því að bjóða upp á stóra fleti af leðri má ná mun betri nýtni í framleiðslu á vörum, samanborið við leður sútað með hefðbundnum hætti,“ segir María.
María segir ennfremur að þessa dagana sé teymið að koma nýrri heimasíðu í loftið og láta endurteikna lógó. Jólunum verði eytt í rólegheitunum, en svo fari allt á fullt eftir áramót. „Ég hef alltaf haft óendanlegan áhuga á hliðarafurðum og því púsli sem því fylgir. Fyrir mér er þetta eitthvað sem þarf að gera, og þarf að fullreyna. Við höfum fengið mikinn stuðning og fólk er almennt mjög spennt fyrir verkefninu.“ segir María.