Þrír bílar brunnu við Kjarnagötu á Akureyri

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Þrír bílar brunnu í nótt á bílastæði við fjölbýlishús við Kjarnagötu á Akureyri en það var RÚV sem greindi fyrst frá þessu. Þar er haft eftir  Rolf Tryggvasyni, varðstjóra hjá Slökkviliði Akureyrar, að tekist hafi að bjarga nokkrum bílum en viðbúið sé að nokkrir séu skemmdir til viðbótar við þessa þrjá sem eru alveg ónýtir.

Þá kemur fram að enginn bílanna sé rafknúinn og ekki hafi verið hætta á að eldurinn bærist í hús og fólk hafi ekki verið í hættu.

Tilkynnt hafi verið um brunann rúmlega þrjú í nótt og aðgerðir hafi tekið um hálftíma. Ekkert er vitað um eldsupptök en lögregla rannsakar nú vettvanginn.

Nýjast