20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Þreytti frumraunina með mömmu og pabba
Hin 12 ára Helga Björg Kjartansdóttir þreytti frumraun sína með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sl. laugardagskvöld þegar hún spilaði á tónleikunum Fullveldiskantata „Út úr kofunum“ í Menningarhúsinu Hofi. Helga lék á víólu en hún byrjaði fimm ára að læra á hljóðfærið og er einnig að læra á rafmagnsbassa. Hún spilaði á tónleikunum ásamt stórum hópi listarmanna og þar á meðal foreldrum sínum, Unu Björgu Hjartardóttur og Kjartani Ólafssyni, sem bæði hafa lengi spilað með sinfóníuhljómsveitinni.
Þetta kemur fram á vef Menningarfélags Akureyrar.
Fullveldiskantatan er nýtt verk í söngleikjastíl eftir Michael Jón Clarke og Sigurð Ingólfsson og var samin í tilefni að aldar afmæli fullveldis Íslands. Auk Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands tóku Strengjasveit Fullveldisins, Hymnodia og Æskuraddir Fullveldisins þátt í flutningnum auk einsöngvaranna Stefáns Jakobssonar, Þórhildar Örvarsdóttur og Gísla Rúnars Viðarssonar.