Þór í efstu deild í körfubolta kvenna
Stelpurnar i Þór tryggðu sér sæti í Subway deild (efsta deild) í körfubolta í gærkvöldi þegar þær lögðu lið Snæfells frá Stykkishólmi í fjórða leik liðanna í úrslitakeppni 1 deildar en leikið var í Íþróttahúsinu á Stykkishólmi. Lokatölur voru 100 - 90 eftir framlengdan leik, en staðan eftir venjulegan leiktíma var 81-81. Þeir vann þetta einvígi því 3-1 og tryggðu sér sæti i efstu deild eins og áður sagði en það eru 45 ár frá því að félagið átti lið í deild þeirra bestu.
Glæsilegt hjá Þórsstelpum og fram undan er barátta um gullið við lið Stjörnunnar og fer fyrsti leikur liðanna fram á morgun 4 apríl kl. 19:15 í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ, þær taka svo á móti andstæðingum sína í Íþróttahöllinni þann 8 apríl en vinna þarf 3 leiki til þess að tryggja sér gullið og efsta sæti fyrstu deildar.
Til hamingju Þórsarar.