Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppur með flestar umsóknir í viðskiptahraðalinn Vaxtarými

Mývatn. Mynd:skutustadahreppur.is
Mývatn. Mynd:skutustadahreppur.is

Fjölmargar umsóknir bárust í viðskiptahraðalinn Vaxtarrými en umsóknarfresti lauk á miðnætti, mánudaginn 20. september. Um er að ræða átta vikna viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpunarverkefna innan starfandi fyrirtækja á Norðurlandi. Áhersla hraðalsins er sjálfbærni, matur, vatn og orka. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SSNE.

Næstu skref Norðanáttar, regnhlífasamtök Nýsköpunar á Norðurlandi, er að fara yfir umsóknir og meta hvaða verkefni falla best að áherslum hraðalsins. Þátttökuteymin verða tilkynnt mánudaginn 27. september. Hraðalinn hefst 4. október og stendur yfir til 26. nóvember.

Umsóknir bárust víðsvegar af Norðurlandi flestar komu þær úr Þingeyjarsveit og Skútustaðarhreppi eða um 33% umsókna. Eyjafjarðarsveit, Norðurþing, Húnavatnshreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður voru með rúm 13% umsókna og Dalvíkurbyggð og Skagaströnd tæp 7%. 

Norðanátt koma SSNE, SSNVEimurNýsköpun í Norðri og RATA.

Nýjast