ÞINGEYINGUR frumsýndur á Húsavík í kvöld!

Þingeyskir höfuðpaurar Þingeyings, Hjalti, Vala og Jenný Lára.
Þingeyskir höfuðpaurar Þingeyings, Hjalti, Vala og Jenný Lára.

Þrír ungir leikarar, leikstjórar og Þingeyingar mynda leikhópinn Hrafnstjarna sem setur upp sýninguna Þingeyingur! nú um helgina á fjórum stöðum í sýslunni í samvinnu við “Aftur heim.” Til stóð að sýna verkið fyrr á árinu en af því gat ekki orðið.

Þingeyingur verður frumsýndur í Samkomuhúsinu á Húsavík í kvöld 25. nóvember kl. 20.00. Önnur sýning er í Skólahúsinu á Kópaskeri klukkan 14 á laugardag og þriðja sýning á Breiðumýri í Reykjadal kl. 20.00 á laugardag. Fjórða sýning er svo fyrirhuguð í Skjólbrekku í Mývatnssveit kl. 20.00 á sunnudag. Miðapantanir eru á hrafnstjarna@gmail.com og í síma 847-6921.

Þetta er glænýtt gamanverk í einum þætti, unnið upp úr ,,Sönnum Þingeyskum lygasögum” sem Jóhannes Sigurjónsson safnaði, færði í letur, stílfærði  og bjó til prentunar. Það eru frændsystkinin Hjalti Rúnar Jónsson og systurnar Jenný Lára og Fanney Vala Arnórsdætur sem standa að baki þessari sýningu.

Jenný Lára sér um leikstjórn, Vala Fannell um framleiðslu og Hjalti Rúnar um leik. Þau eru öll ættuð frá Hömrum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu og þau hafa undanfarin misseri unnið að þessari sýningu þar sem  skoðað  er hvað það merkir í raun að vera Þingeyingur. Þar sem þeir eru þekktir fyrir ástríðu, ósérhlífni, skopskyn og stolt er mikilvægt að spyrja:  Hvað er satt og hverju er logið þegar kemur að þessum höfuðpaurum Norðurlandsins?

Verkið einkennist af léttu skopi, söng og gleði og leikhópurinn hlakkar til að færa öðrum Þingeyingum sjálfa sig á góðlátlegu skemmtifati nú í lok nóvember.

“Aftur heim” er þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að efla tengsl við brottflutta unga listamenn úr Þingeyjarsýslum. Umsækjendur geta verið einstaklingar á aldrinum 20-35 ára, eiga rætur í Þingeyjarsýslu sem stunda eða hafa lokið listnámi sem lýkur með formlegri prófgráðu. Markmiðið með verkefninu er að gefa þeim tækifæri til að snúa aftur heim til að framkvæma eða taka þátt í menningarverkefnum í heimabyggð. JS

Nýjast