Sýnið neikvætt og leikskólinn opnaði í morgun
Eins og greint var frá í gær var leikskólanum Álfaborg á Svalbarðseyri lokað á þriðjudaginn á meðan beðið var niðurstöðu úr sýnatöku sem fjölskyldumeðlimur starfsmanns fór í. Ekki reyndist þó um COVID-19 að ræða og nemendur og starfsmenn leikskólans Álfaborgar mættu í skólann í morgun.
"Þetta er mikill léttir og nú getur skólastarfið í leikskólanum hafist með nýjum nemendum og spennandi verkefnum. Um leið er sú staða sem upp kom áminning um að við slökum ekki á og höldum áfram að halda starfinu svæðaskiptu og takmörkum samgang milli svæða," segir á vef Svalbarðseyrar.