Svifryk ítrekað margfalt yfir því sem telja má eðlilegt og heilsusamlegt
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra átelur sinnuleysi bæjaryfirvalda á Akureyri gagnvart svifryksvanda sem er verulegur og alvarlegur á Akureyri.
Bæjarráð Akureyrar fjallað um bókun sem nefndin gerði vegna svifryk á fundi í morgun, tekur hana alvarlega og leggur áherslu á að brugðist sé við þeim.
Bæjarráð telur mikilvægt að bæta við áreiðanlegum svifryksmælum og flýta endurskoðun á verklagsreglum vegna loftmengunar segir í bókun ráðsins en málinu var vísað áfram til umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Heilbrigðisnefndin fjallaði um málið á fundi í nóvember en hafði einnig farið yfir svifryksmálin á fundi fyrr um haustið og þá bent á að nú færi sá tími í hönd að búast mætti við að styrkur svifryks færi yfir viðmiðunarmörk. Því væri mikilvægt að ljúka uppsetningu á nýjum loftgæðamælum og endurskoðun verklagsreglna gegn svifryki. Hvorugu verkefnanna er lokið en á haustdögum hefur svifryk ítrekað fari yfir viðmiðunarmörk.
Í bókun Heilbrigðisnefndar er bent á að eini mælirinn sem nú er virkur hafi sýnt tölur yfir 500 µg/m³ sem er margfalt yfir því sem hægt er að telja eðlilegt og heilsusamlegt.
Mikilvægt að taka málið föstum tökum og ráðast gegn rótum vandans
„Þetta er í raun óboðlegt ástand og mikilvægt að það sé tekið föstum tökum og ráðist gegn rótum vandans. Tafir hafa orðið á endurskoðun verklagsreglna gegn svifryki og yfirtaka Vegagerðarinnar á vetrarþjónustu hefur aukið óvissu um hver ber ábyrgð á aðgerðum gegn svifryki s.s. hreinsun gatna á tilteknum svæðum,“ segir í bókun nefndarinnar.
Þá bendi margt til þess að lofgæðamælar sem settir voru upp í ársbyrjun gagnist ekki til að mæla styrk svifryks og gögn úr þeim verða því ekki birt á loftgæðavef Umhverfisstofnunnar.
Heilbrigðisnefnd gerir þá kröfu að Akureyrarbær og Vegagerðin ljúki vinnu við verklagsreglur gegn svifryki og hefji vinnu samkvæmt þeim án frekari tafa. Jafnframt óskar nefndin eftir upplýsingum um til hvaða aðgerða Akureyrarbær hyggst grípa varðandi mælingar á svifryki í ljósi frétta um að gögn úr nýlega uppsettum loftgæðamælum muni ekki verða birt á loftgæðavef Umhverfisstofnunnar.