Sumaropnun í Hlíðarfjalli framlengd vegna veðurs

Down hill keppni  í Hlíðarfjalli. Mynd: akureyri.is
Down hill keppni í Hlíðarfjalli. Mynd: akureyri.is

Vegna skaplegrar veðurspár  hefur verið ákveðið að framlengja sumaropnun í Hlíðarfjalli og hafa opið laugardaginn 11. september frá kl. 10-16. Um þetta er tilkynnt á vef Akureyrarbæjar.

ÞAr segir jafnframt að Fjarkinn verði í gangi og því  hægt að taka hjólin með sér upp að Strýtu. Margar merktar hjólaleiðir eru í Fjallinu og skemmtileg gönguleið er frá Strýtuskálanum upp á fjallsbrún. Þaðan má sjá vítt og breitt um Norðausturland í góðu skyggni.

Sunnudaginn 12. september verður síðasta bikarmót ársins í Fjallabruni á hjólum. Mótið hefst kl. 12 og eru áhugasamir hvattir til að mæta í Fjallið, fylgjast með og hvetja keppendur áfram til sigurs.

Nýjast