Styður ekki frumvarp um afglæpavæðingu fíkniefna
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra styður ekki frumvarp heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta. Þetta kemur á Facebooksíðu lögreglunnar.
Embættið hefur skilað umsögn vegna frumvarps um breytingar á ávana- og fíkniefnalögum er lítur að því að gera vörslur og kaup fíkniefna upp að ákveðnu marki refsilaus.
"Embættið getur ekki stutt frumvarpið og eru fjölmargar ástæður fyrir því sem raktar eru í umsögninni sem birt er á slóð Alþingis," segir í Facebookfærslu lögreglunnar.