13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Stórt sundmót á Akureyri og lauginni lokað tímabundið um helgina
AMÍ, sem er haldið á vegum Sundsambands Íslands og Sundfélagsins Óðins, hefst á morgun, föstudag, og verður allt svæði Sundlaugar Akureyrar lagt undir mótið meðan á því stendur, það er fyrir kl. 17 næstu þrjá daga. Þar af leiðandi verður Sundlaug Akureyrar aðeins opin almenningi kl. 17-22 dagana 25.-27. júní. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Von er á 270 keppendum á mótið. Að sögn Pálínu Dagnýjar Guðnadóttur, starfandi forstöðumanns Sundlaugar Akureyrar, er þetta í fyrsta sinn sem lauginni er lokað vegna sundmóts en það á að einfalda framkvæmd mótsins í alla staði, bæði fyrir mótshaldara, starfsfólk og keppendur.
Veðurspá fyrir helgina er góð og er sundþyrstum bent á aðrar sundlaugar í grenndinni. Glerárlaug verður opin meira en venjulega, það er kl. 9-17 á laugardag og sunnudag. Einnig er bent á sundlaugar í Hrísey, Grímsey, Hrafnagili eða Þelamörk..