Stóri plokkdagurinn á laugardaginn

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Stóri plokkdagurinn verður haldinn næsta laugardag, 24. apríl, og þá eru Akureyringar og landsmenn allir hvattir til að tína (plokka) rusl. Segir í frétt á vef bæjarins að nú sé frábær tími til að hreinsa bæinn okkar og koma honum í sparifötin fyrir sumarið, enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hopar á vorin.

"Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska," segir í fréttinni.

Afrakstur plokksins má skilja eftir í sérstökum gámum sem settir verða við allar grenndarstöðvar um helgina. Stjórnendur og starfsfólk stofnana og fyrirtækja á Akureyri eru hvattir til að plokka í kringum sína vinnustaði í vikunni og hiti þannig upp fyrir stóra daginn. 

Nokkur góð ráð:

-Plokkum og hreyfum okkur í leiðinni – æfing dagsins

-Klæðum okkur eftir veðri


-Notum hanska og tangir ef þær eru til


-Virkjum alla fjölskylduna, vini og nágranna en hver á sínum hraða.


-Virðum fjarlægðarmörk.

Nýjast