Stórfelld líkamsárás á Akureyri til rannsóknar
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur sl. sólarhring haft til rannsóknar meiriháttar líkamsárás, rán og eignaspjöll sem áttu sér stað á bifreiðastæði við verslunarmiðstöðina Glerártorg sl. Sunnudagskvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Greint er frá því að veist hafi verið að 16 ára pilti með hamri og hann sleginn í höfuðið auk þess að bifreið, sem hann var farþegi í, var skemmd. Sex piltar fæddir frá 2003 til 2005 voru handteknir vegna málsins og voru þeir vistaðir í fangahúsi vegna gruns um aðild að málinu.
„Fjöldi yfirheyrslna hafa verið framkvæmdar vegna málsins og lauk þeim að mestu í gærkvöldi með aðstoð barnaverndarfulltrúa. Þá var einnig rætt við vitnin í gær og leitir framkvæmdar í bifreið og húsnæði. Við leit fannst hamar sem talinn er tengist málinu.
Rannsókninni miðar vel og er hún langt á veg komin. Málsatvik eru nokkuð ljós og voru hinir handteknu látnir lausir að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi,“ segir í tilkynningunni.