Sólstöðuhátíð í Grímsey
Undirbúningur stendur nú sem hæst fyrir Sólstöðuhátíðina sem haldin verður í Grímsey, helgina 20.-23. júní. Á hátíðinni verður boðið upp á siglingu í kringum eyjuna, fjölskylduratleik, göngu með leiðsögn, dorgveiðikeppni, bryggjumarkað, varðeld og brekkusöng.
Eyþór Ingi Jónsson og Elvý Hreinsdóttir halda tónleika, myndlistarmenn vinna verk með krökkunum í eyjunni, kvennfélagið Baugur heldur sjávarréttarkvöld og loks verður slegið upp ekta dansleik að hætti heimamanna.
Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar. „Þessi helgi í kringum sumarsólstöður er kjörin til að heimsækja Grímsey og njóta alls þess besta sem þessi náttúruperla hefur að bjóða,“ segir á vef bæjarins.