Smit í flestum grunnskólum Akureyrar

Akureyri
Akureyri
Nú í vikunni hafa verið að greinast ný smit á Akureyri og hafa þau tengst inn í grunnskóla bæjarins. Í dag var fjöldi sýna tekin og í ljós hefur komið að staðfest eru a.m.k. 14 ný smit, og þau flest hjá aðilum á grunnskólaaldri. Verið er að vinna að rakningu í þessum tilfellum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra
"Þessi smit ná inn í flesta grunnskólana og hvetjum við foreldra að halda börnum sínum til hlés í samskiptum við önnur börn á meðan rakning fer fram og yfirsýn næst, á það einnig við um íþróttaæfingar. Jafnframt hvetjum við fólk til að skrá sig og börn sín í sýnatöku finni það til einkenna," segir í tilkynningunni.

Nýjast