13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Skora á bæjarbúa að snyrta gróður
Akureyrarbær skorar á lóðarhafa og umráðendur lóða að snyrta gróður sem nær út fyrir lóðamörk að götum, gangstéttum og stígum þar sem hann veldur óþægindum fyrir gangandi vegfarendur, umferð ökutækja og skyggir á umferðarskilti og götumerkingar.
Hæð undir gróður við gangstéttar skal ekki vera minni en 2,8 metrar og við akbraut 4,5 metrar. Snyrtingu gróðurs skal vera lokið fyrir 22. ágúst næstkomandi, en að þeim tíma liðnum verður gróður fjarlægður á kostnað lóðarhafa, segir á vef bæjarins.