27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Skógræktarfélag samþykkir ekki áform um framkvæmdir í Vaðlareit
Stjórn Skógræktarfélags Eyjafjarðar getur ekki samþykkt hugmyndir um þau framkvæmdaáform sem fyrirhuguð eru í Vaðlareit út frá þeim göngum sem fylgdu erindi frá Landslagi ehf fyrir hönd landeigenda Ytri- og Syðri Varðgjár vegna hótelbyggingar í Vaðlaskógi sem fyrirhugaðar eru í námunda við Skógarböðin.
Stjórn SE fjallaði um erindi á fundi fyrr í þessu mánuði og kemur fram í ályktun sem bókuð var á fundinum að félagið fagni uppbyggingu á Eyjafjarðarsvæðinu og frumkvöðla- og framkvæmdaorku landeigenda Ytri- og Syðri-Varðgjár.
Félagið hefur haft umráðarétt yfir landi Vaðlaskógar allt frá árinu 1936 og ræktað þar skóg í 86 ár. Frá upphafi hefur markmiðið með ræktun skógarins verið að skapa yndisreit fyrir almenning til að njóta útivistar í skjóli trjánna segir í bókuninni og einnig að almennt sé félagið mótfallið hvers konar mannvirkjagerð í Vaðlaskógi. „Félagið áskilur sér þó rétt til að meta hvert mál fyrir sig en þá ávallt með lög félagsins og markmið að leiðarljósi en einnig þær skuldbindingar og réttindi sem umráðasamningur félagsins um Vaðlaskóg kveður á um,“ segir í bókun SE
Ósamið um afnotamissi og skógfellingu
„Félagið getur ekki samþykkt hugmyndir um framkvæmdaáform út frá þeim gögnum sem fylgdu erindinu enda alls kostar óljóst með hvaða hætti framkvæmdir verða útfærðar eða hvaða áhrif fyrirhuguð mannvirkjagerð kemur til með að hafa á afnot og ásýnd skógarins. Einnig er ósamið um þann afnotamissi og skógfellingu sem hlytust af yrðu framkvæmdir að veruleika.“
Félagið lýsir sig reiðubúið til áframhaldandi viðræðna við landeigendur um hugmyndir að framtíðarskipulagi Vaðlaskógar í landi Ytri- og Syðri-Varðgjár og vill benda á mikilvægi skógarins sem mótvægi við sífellt þéttari byggð allt í kring.