Sjúkrahúsið á Akureyri léttir á grímuskyldu

Þrettán eru inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri með Covid-19. Átta á lyflækningadeild, þrír á skurðlækningadeild og tveir á gjörgæsludeild, hvorugur í öndunarvél. Enn er töluverður fjöldi starfsmanna fjarverandi vegna Covid-19 og áfram verða takmarkanir á göngudeildaþjónustu og valaðgerðum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAk en sjúkrahúsið er enn á hættustigi.

Þá kemur fram að létt hafi verið lítillega á grímuskyldu á sjúkrahúsinu.

„Að ígrunduðu máli er talið mögulegt að létta lítillega á grímuskyldu: Grímuskylda við móttöku og umönnun sjúklinga er áfram í gildi, burtséð frá fjarlægðamörkum. Taka má niður grímu þegar hægt er að viðhafa 2ja metra fjarlægð utan klínískrar starfsemi. Þetta tekur gildi frá og með deginum í dag. Heimsóknargestir og göngudeilda sjúklingar skulu áfram bera grímur við komu á sjúkrahúsið,“ segir í tilkynningunni.

Nýjast