13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Sjávarútvegsskóla unga fólksins
Sjávarútvegsskóla unga fólksins lauk nýverið en kennt var á fimm stöðum á Austurlandi, fjórum stöðum á Norðurlandi, í Reykjavík og í Vesturbyggð. Skólinn var rekinn í samstarfi sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja, vinnuskóla byggðarlaga og Sjávarútvegsmiðstöðvar Háskólans á Akureyri.
Kennarar voru 8 , ýmist útskrifaðir sjávarútvegsfræðingar frá Háskólanum á Akureyri eða eru enn í námi. Nemendur við skólann voru á aldrinum 13-16 ára og voru 394 sumarið 2020. Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt í áranna rás, en fyrsta starfsár skólans, 2013 voru þeir 20 talsins.
Nemendur fengu bóklega fræðslu í formi fyrirlestra og leikja, fengu að meta gæði fisks með skynmati, heimsóttu fyrirtæki í sjávarútvegi og tengdum greinum og skoðuðu fiskiskip. Gestafyrirlesarar komu í heimsókn og fræddu nemendur um sjávarútveg. Einnig heimsóttu nemendur björgunarsveitir og fengu fræðslu um þeirra störf.