20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Síðustu sýningar á Kabarett
Kabarett er sýning sem slegið hefur flest aðsóknarmet en hátt í sex þúsund manns munu hafa séð sýninguna þegar yfir lýkur.
Sýningum Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Kabarett lýkur laugardaginn 9. febrúar eftir tæplega 30 sýningar. Söngleikurinn hefur gengið fyrir fullu húsi síðan hann var frumsýndur í Samkomuhúsinu þann 26. október sl. og hefur fengið frábærar viðtökur, bæði hjá almenningi og gagnrýnendum.
Kabarett er stærsta og flóknasta leiksýning sem Menningarfélag Akureyrar hefur sett upp í áraraðir og sú sýning sem slegið hefur flest aðsóknarmet en hátt í sex þúsund manns munu hafa séð sýninguna þegar yfir lýkur, segir í tilkynningu frá MAk. Marta Nordal, leikhússtjóri LA, leikstýrir Kabarett en þegar mest lætur eru yfir 20 manns á sviðinu í einu.