Sex skemmtilegar vísnagátur

Jón Magnússon á Akureyri hefur undanfarin ár gert vísnagátur og í ár sendir hann Vikudegi sex gátur.  Við birtum hérna gáturnar, með góðfúslegu leyfi frá Jóni. Svörin verða svo birt á milli jóla og nýárs.


Gáta 1:

Útí Höfn er hlykkjótt gönguleið.

Helst er þráðbeint sett á teikniblað.

Ég gæti þess svo Gunna verði ei reið

í gleðskap aldrei fara yfir það.


Gáta 2:

Ekki í görðum eða blettum.

En á túnum blasa við.

Sjást þær oft í sushi réttum,

sem og hári, hlið við hlið.


Gáta 3:

Eitt af því sem amma kunni

einkum gerði fyrir jól.

Stundum hef í hönd og munni.

Hestar gera, einnig hjól.


Gáta 4:

Heppnum færir fé og muni í skyndi.

Frestun þess að gera hlutum skil.

Erfitt verk í ölduróti og vindi.

Áður nauðsyn þess að verða til.


Gáta 5:

Hér í borg í háskólanum argur

hrokagikkur þreytti prófin fimm.

Inní honum ástarfundur margur.

Ungur villist fuglinn kvöldin dimm.


Gáta 6:

Úr fortíðinni þarftu loks að leita

lausnin felst í tveimur gömlum orðum.

Áhöldum sem bændur þurftu að beita

í baráttu við torf og jarðveg forðum.


Fyrra áhald einnig nafn á manni

embætti hann gegnir hér á landi.

Stórum jeppa stýrir hann með sanni

stofnun einnig, þar er rekstrarvandi.


Í niðurskurði skyldugur að vinna

skítverk nokkuð, lausnin hér er það.

Því seinna orðið sem að þarf að finna

er sagnorð algengt, þú mátt finna hvað.

 

Nýjast