13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Sendiherra Bretlands í heimsókn á Akureyri
Nýr sendiherra Bretlands á Íslandi, dr. Bryony Mathew, er á ferðalagi um Norðausturland og átti í gær fund með Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, og Guðmundi Baldvini Guðmundssyni, formanni bæjarráðs. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Bryony lýsti miklum áhuga á að kynnast atvinnulífi og menningu Norðurlands og var á fundinum rætt vítt og breitt um mögulegt samstarf akureyrskra og breskra fyrirtækja á ýmsum sviðum.
Bryony kom til stafa sem sendiherra á Íslandi í ágúst sl. en hefur starfað á vegum bresku utanríkisþjónustunnar víða um heim síðan 2005, til að mynda í Kína, Kambódíu og á Indlandi. Áður en hún kom til Íslands var hún aðstoðarframkvæmdastjóri sérstakrar Covid-19 verkefnastjórnar bresku utanríkisþjónustunnar.