Segja flugfélagið Erni ekki sita við sama borð og Icelandair

Mynd/Framsýn
Mynd/Framsýn

Framsýn stéttarfélag hefur um all nokkurt skeið barist fyrir framtíð áætlunarflugs til Húsavíkur. Félagið hefur gagnrýnt stuðning stjórnvalda við áætlunarflug innanlands sem að mati félagsins kallar á einokun í flugi á Íslandi en allt áætlunarflug er með stuðning í formi ríkisstyrkja eða nýtur ríkisábyrgðar nema áætlunarflugið milli Reykjavíkur og Húsavíkur. 

Framsýn fundaði í síðustu viku með samkeppniseftirlitinu ásamt fulltrúum frá flugfélaginu Erni sem sinnir áætlunarflugi til Húsavíkur.

Á vef Framsýnar er greint frá því að í umsögn Samkeppniseftirlitsins um frumvörp sem voru samþykkt á Alþingi haustið 2020 og varða ríkisaðstoð til handa Icelandair er skýrt tekið fram að á þeim mörkuðum sem félagið og dótturfélög þess starfa, hafi eftirlitið verulegar áhyggjur af áhrifum ríkisaðstoðarinnar á samkeppni á viðkomandi mörkuðum. Þar kemur einnig fram að Air Iceland Connect(nú Icelandair) njóti mikilla yfirburða í innanlandsflugi. Það er á stærstu flugleiðum innanlands frá Reykjavík til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar. Flugfélagið hafi nánast haft einokunarstöðu á flugi innanlands allt frá árinu 2000 þegar Íslandsflug hætti samkeppnisflugi á leiðunum. Ljóst sé að ríkisaðstoð sem styddi við rekstur Air Iceland Connect/Icelandair myndi hafa skaðleg áhrif á fyrirtæki á borð við Flugfélagið Erni í innanlandsflugi segir jafnframt í umsögninni.

Þá segir í greininni á vef Framsýnar að „svo virðist sem unnið sé að því að koma Flugfélaginu Erni útaf markaðinum með ýmsum brögðum sem Framsýn hefur þegar komið á framfæri við stjórnvöld og nú við Samkeppniseftirlitið þar sem stefnir í algjöra einokun á áætlunarflugi á Íslandi. Vísbendingar eru um að Flugfélagið Ernir eigi ekki auðvelt með að mæta þeim mikla mótbyr sem flugfélagið býr við um þessar mundir þar sem flugfélagið situr ekki við sama borð og Icelandair er viðkemur styrkjum eða annarri fyrirgreiðslu frá ríkinu.“

Á fundinum með Samkeppniseftirlitinu kom Framsýn þessum skoðunum vel á framfæri. Fulltrúar Samkeppniseftirlitsins sögðust taka sjónarmið Framsýnar og flugfélagsins til skoðunar innanhúss.

Nýjast