27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Sandra María og Bjarni Guðjón íþróttafólk Þórs 2022
Kjöri á íþróttafólki Þórs 2022 var lýst á samkomunni Við áramót sem fram fór í Hamri síðdegis. Knattspyrnufólkið Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Sandra María Jessen eru íþróttafólk Þórs 2022.
Íþróttakona Þórs 2022: Sandra María Jessen
Sandra María Jessen var tilnefnd af stjórn Þórs/KA fyrir kjörið á íþróttakonu Þórs.
Sandra María hefur lagt gríðarlega vinnu í að koma sér í fyrra form eftir barnsburð. Hún er einn af lykilleikmönnum Þórs/KA og setur sér skýr og háleit markmið. Hún stefnir á að koma til baka í A-landslið Íslands og var nú í haust valin í æfingahóp liðsins. Sandra mætir ávallt einbeitt til leiks og gerir allt sitt af fullum krafti.
Hún spilaði alla leiki Þórs/KA í sumar og var markahæst í liðinu með átta mörk í, aðeins þremur mörkum frá markahæsta leikmanni sumarsins í Bestu deild kvenna.
Sandra María bætti félagsmet Rakelar Hönnudóttur þegar hún skoraði 75. mark sitt í efstu deild í leik í maí og hélt áfram að bæta það út tímabilið og endaði í 81 marki í efstu deild þegar upp var staðið í haust, en hún náði jafnframt þeim áfanga í haust að skora 100. mark sitt fyrir Þór/KA þegar önnur mót á vegum KSÍ og leikir í Evrópukeppni eru talin með.
Íþróttakarl Þórs 2022: Bjarni Guðjón Brynjólfsson
Knattspyrnudeild Þórs tilnefndi Bjarna Guðjón Brynjólfsson sem knattspyrnukarl ársins úr sínum röðum og tilnefnir hann í kjöri til íþróttakarls Þórs.
Þrátt fyrir ungan aldur er Bjarni orðinn einn af lykilmönnum meistaraflokks Þórs í knattspyrnu. Bjarni kemur úr hinu öfluga yngri flokka starfi Þórs og hefur rækilega stimplað sig inn hjá Þór og yngri landsliðum Íslands.
Bjarni sem er aðeins átján ára spilaði 19 leiki í lengjudeildinni með Þór á síðasta tímabili og skoraði 6 mörk. Þá lék hann 7 leiki með U19 ára landsliði Íslands og skoraði 1 mark.
Frá þessu segir á www.thorsport.is