Samtök um dýravelferð skora á Akureyrarbæ að styðja við Kisukot

Ragnheiður Gunnarsdóttir rekur Kisukot
Ragnheiður Gunnarsdóttir rekur Kisukot

Mikill kostnaður fylgir starfseminni  Dýralæknakostnaður vegur þyngst, matur og sandur og nemur kostnaður milljónum. Um 100 manns styðja við starfið með eigandanum.

 Langt er síðan jafn margir kettir hafa verið á vergangi á Akureyri og er nú um þessar mundir. Ragnheiður Gunnarsdóttir sem rekur Kisukot – kattaaðstoð á Akureyri segir að kettir haldi sig í þó nokkrum mæli á þremur stöðum í bænum og fer hún á milli og gefur mat. „Við vitum um ketti á þessum þremur stöðum og það þarf að ná þeim, mér sýnist að flestir séu fyrrum heimiliskettir sem enginn gefur sig fram um að eiga,“ segir hún.

Ragnheiður segir að eflaust sé fleiri en ein skýring á því að svo margir kettir séu á vergangi nú, en alkunna er að margir fengu sér krúttlegan kettling þegar heimsfaraldur kórónuveirunnar gekk yfir. Talsverður fjöldi úr þeim hópi hefur ekki haft úthald til að sinna gæludýrinu sínu út líftíma þess og reynt að losa sig við þá með margvíslegum hætti. „Það er erfitt að segja hvort þetta megi allt skrifast á kóvid eða eitthvað annað,“ segir hún. „En kóvidkettir eru svo sannarlega enn að missa heimili sín.“

Leigumarkaður hjálpar ekki

„Þá nefnir Ragnhildur að algengt sé nú að fólk þurfi að láta frá sér gæludýr vegna reglna sem eigendur leiguhúsnæðis setja, en flestir vilja ekki sjá gæludýr. „Leigumarkaðurinn er ekki að hjálpa,“ segir hún.  Og bætir við að hún hafi nýverið náð einum högna sem enginn virðist eiga, sá er mjög ljúfur, en bæði ógeldur og ómerktur og gefur sig enginn fram sem eigandi hans þrátt fyrir auglýsingar.

Ragnheiður hefur starfrækt Kisukot í 11 og hálft ár, opnaði í janúar árið 2012. Að jafnaði voru um 100 kettir sem komu við í Kisukoti tímabundið áður en þeim var fundið heimili og á stundum fór talan upp í um 150 ketti.

Stærsti útgjaldaliðurinn er dýralæknakostnaður

Mikill kostnaður fylgir því að halda starfseminni út, en sem dæmi hefur Ragnheiður greitt um 600 til 700 þúsund krónur á fyrri helmingi þessa ár eingöngu í dýralæknakostnað. „Það hafa komið upp nokkur dýr og erfið tilvik undanfarna mánuði, tanntökur sem dæmi og mikið af blóðprufum sem kosta sitt,“ segir hún er dýralæknakostnaður á ári er að jafnaði um eða yfir ein milljón króna. Dýralæknakostnaður er stærsti útgjaldaliður Kattakot en þar á eftir er kaup á sandi og mat. Hún segist reyna að lámarka kostnað með því að versla skynsamlega inn, m.a. kaupi hún í heildsölu það sem hægt er. „Fljótt á litið giska ég á að bara sandurinn sem dæmi kosti ríflega hálfa milljón á ári,“ segir hún.

Um 100 manns greiða árgjald

Kisukot fær styrki frá einstaklingum og oftast nær er ekki um að ræða stóra styrki í einu frá hverjum og einum, en margt smátt gerir eitt stórt. Hún nefnir þó að fyrir hafi komið að einn og einn hafi gaukað að henni 50 og eða 100 þúsund krónum á einu bretti en það sé ekki algengt. Þá býður hún fólki að greiða árgjald sem rennur sem styrkur til starfseminnar og hafa um 100 manns skráð sig fyrir slíkum greiðslum. Nýlega bauð hún fólk einnig að styðja við starfsemina með því að greiða ákveðna upphæð einu sinni í mánuði. „Allt hjálpar,“ segir hún.

Sveitarfélög láti sig varða velferð dýra

Rósa Líf Darradóttir hefur fyrir hönd stjórnar Samtaka um dýravelferð á Íslandi skorað á bæjarstjórn að styðja við starfsemi Kisukots. Bæjarráð fékk málið til umfjöllunar og vísaði því til umhverfis- og mannvirkjaráðs. Ráðið fólk forstöðumanni umhverfis- og sorpdeildar að ræða við umsjónarmann Kisukots um mögulegt samstarf í samræmi við þær umræður sem urðu á fundinum. Ragnheiður kveðst ekki hafa heyrt í forstöðumanninum en var í startholum að hafa sjálf samband.

„Við skorum á bæjarstjórn Akureyrar að styðja við það mikilvæga og óeigingjarna starf sem fer fram í Kisukoti. Það er mikil þörf fyrir þessa þjónustu. Mörg hundruð kisum hefur verið bjargað og það hefur kostað vinnu, tíma og fjármagn,“ segir Rósa Líf. Áframhaldandi starfsemi Kisukots sé því tvímælalaust Akureyrarbæ í hag. Hún bendir á að sveitarfélög hafi aðstoðað sambærilega starfsemi og nefnir m.a. Akranes sem dæmi, en sveitarfélagið útvegaði félaginu Villiköttum húsnæði þar. „Það er mikilvægt að sveitarfélög láti til sín taka í málum sem varða velferð dýra.“

 

Nýjast