Samskip og Andrésar andar leikarnir skrifa undir 3ja ára samning

Þórunn Inga Ingjaldsdóttir forstöðumaður Markaðs- og Samskiptadeildar Samskip og Fjalar Úlfarsson fo…
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir forstöðumaður Markaðs- og Samskiptadeildar Samskip og Fjalar Úlfarsson formaður Andrésarnefndar við undirritun samningsins

Samskip hefur um langt árabil verið traustur bakhjarl Andrésar andar leikanna og hafa þessir aðilar nú endurnýjað samstarf sitt til næstu þriggja ára.

“Það er okkur gríðarlega mikilvægt að leikarnir hafi styrktaraðila úr atvinnulífinu sem með aðkomu sinni hjálpa til við að gera framkvæmd leikanna sem allra besta fyrir þátttakendur og fjölskyldur þeirra” segir Fjalar Úlfarsson formaður undirbúningsnefndar Andrésar leikanna.

Samskip hefur verið áberandi á öllu efni leikanna og prýða fána og veifur víða um bæinn þegar leikarnir standa yfir. En Samskip hefur einnig aðstoðað við flutning á aðföngum og búnaði undanfarin þau 12 ár sem samstarfið hefur staðið.

Undirbúningur leikanna 2023 hefur staðið yfir síðan í september og er það von framkvæmdaraðila að 47. leikarnir verði glæsilegir og þátttaka skíða- og brettabarna af öllu landinu verði góð eins og verið hefur undanfarin mörg ár.

Á myndinni eru Þórunn Inga Ingjaldsdóttir forstöðumaður Markaðs- og Samskiptadeildar Samskip og Fjalar Úlfarsson formaður Andrésarnefndar við undirritun samningsins á fyrsta opnunardegi vetrarins í Hlíðarfjalli s.l. laugardag.

 

 Þetta kemur fram á facebook síðu Andrésar andarleikanna

 

Nýjast