Samningur við Súlur Vertical undirritaður

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Þorbergur Ingi Jónsson formaður Súlur Vertical undi…
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Þorbergur Ingi Jónsson formaður Súlur Vertical undirrituðu samninginn.

Akureyrarbær og félagasamtökin Súlur Vertical hafa gert með sér samning um stuðning sveitarfélagsins við fjallahlaupið Súlur Vertical árið 2021. Samningurinn felur einnig í sér sameiginlegt markmið um þróun og uppbyggingu til lengri tíma. Súlur Vertical fer fram á Akureyri um verslunarmannahelgina. Það var fyrst haldið 2016 og hefur síðan vaxið ár frá ári en féll niður í fyrra af þekktum ástæðum.

Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að stefnt sé að því að Súlur Vertical festi sig smám saman í sessi sem vel þekktur alþjóðlegur íþróttaviðburður og verði jafnframt einn af hápunktum verslunarmannahelgar á Akureyri sem dragi fjölda gesta til bæjarins. Með þessum nýja samningi sé staðfestur vilji Akureyrarbæjar til að styðja við slíka þróun. Hlutverk bæjarins samkvæmt samningnum er fyrst og fremst fólgið í vinnuframlagi, ráðgjöf og annarri aðstoð við undirbúning og framkvæmd hlaupsins en félagasamtökin annast stjórn þess, rekstur og bera ábyrgð á framkvæmdinni. „Við höfum mikla trú á Súlur Vertical og teljum að það hafi spennandi tækifæri í för með sér,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri. Framtíðarsýn þeirra sem standa að fjallahlaupinu fellur vel að stefnu sveitarfélagsins um að auka áherslu á heilsutengda ferðaþjónustu og markaðssetningu á einstökum útivistarmöguleikum svæðisins. Ég hlakka til að fylgjast með viðburðinum vaxa og dafna á komandi misserum.“

„Festa Akureyri í sessi sem vöggu fjallahlaupa á Íslandi“

„Frá því við héldum fyrsta utanvegahlaupið á Akureyri fyrir fimm árum hafa vinsældir íþróttarinnar aukist mikið og fjöldi iðkenda á heimsvísu margfaldast,” segir Þorbergur Ingi Jónsson formaður Súlur Vertical. „Þetta skapar möguleika fyrir okkur sem höfum fyrsta flokks aðstöðu með fjölbreyttu landslagi, fjöllum og útivistarstígum í bakgarðinum. Við viljum byggja upp Súlur Vertical og festa Akureyri í sessi sem vöggu fjallahlaupa á Íslandi. Í þeirri vinnu er lykilatriði að hafa góða liðsmenn og því fögnum við samstarfinu við Akureyrarbæ og þökkum fyrir stuðninginn.“

Keppt verður í þremur vegalengdum þann 31. júlí 2021: 18km, 28km og 55km. Hlaupið er um stórbrotna náttúru í nágrenni Akureyrar, þar á meðal um Glerárdal og bæjarfjöllin Súlur og Hlíðarfjall. Nú þegar eru á sjötta hundrað keppendur skráðir til leiks. Þar að auki verður boðið upp á fjölskylduvæna viðburði í tengslum við keppnina, til að mynda menningarhlaup með leiðsögn um Akureyri og krakkahlaup í Kjarnaskógi.

Nýjast