Samningur um þjónustutengda fjármögnun Sjúkrahússins á Akureyri
„Við erum mjög ánægð með þennan áfanga sem við höfum náð með mjög stuttum undirbúningstíma. Ljóst er að slíkur samningur hjálpar til við fyrirsjáanleika og skipulag þjónustu, stuðlar að hagkvæmni og er hvatning til að ná árangri,“ segir Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri um samning sem undirritaður hefur verið og um að klíkísk starfsemi sjúkrahússins verði frá áramótum, 1. janúar næstkomandi fjármögnuð í samræmi við umfang veittrar þjónustu þar sem byggt er á DRG; alþjóðlegu flokkunarkerfi sjúkdóma. Hildigunnur og María Heimisdóttir undirrituðu samninginn og er frá honum sagt á vef stjórnarráðsins.
Þar segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sem staðfesti samninginn að lokinni undirritun að hann væri sannfærður um að samningurinn styrki sjúkrahúsið og bæti alla ákvarðanatöku um úthlutun fjármuna og nýtingu þeirra, hvort sem við horfum til fjárveitingarvaldsins eða stofnananna sjálfra.
María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir: „Þessi samningur er sá fyrsti sem Sjúkratryggingar gera við heilbrigðisstofnun utan Reykjavíkur um þjónustutengda fjármögnun. Við sjáum sérstök tækifæri í því að nýta þau gögn sem gæðavottun SAk. felur í sér til að skoða tengsl þjónustutengdrar fjármögnunar við gæði og árangur.“
Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er sett markmið um að fjármögnun allrar sjúkrahússþjónustu verði þjónustutengd, enda séu greiðslukerfin þýðingarmikil tæki til að stýra þeim fjármunum sem varið er til heilbrigðisþjónustu í samræmi við þjónustuþörf. Þjónustutengd fjármögnun snýst um þetta með áherslu á markviss kaup á heilbrigðisþjónustu byggð á ítarlegri kostnaðar- og þarfagreiningu.
Markmið og ávinningur
- Fjárveitingar taka mið af raunverulegu umfangi þjónustu og raunkostnaði.
- Aukið gegnsæi við úthlutun fjármagns.
- Auðveldara að gera áætlanir og setja markmið um magn þjónustu í samræmi við þörf þeirra sem á henni þurfa að halda.
- Stuðlar að aukinni skilvirkni ásamt betra eftirlit með gæðum, umfangi og hagkvæmni þjónustunnar.
Þjónustutengd fjármögnun sjúkrahússþjónustu er vel þekkt víða um heim og þessi aðferð hefur verið innleidd í flestum Evrópuríkjum. Þá hafa Norðurlandaþjóðirnar um árabil unnið saman að innleiðingu á sameiginlegu DRG flokkunarkerfi, svonefndu NordDRG, sem byggt er á við kostnaðargreiningu á Landspítala og við Sjúkrahúsið á Akureyri.