Samið um Andrésar andar leikana

Frá undirritun samningsins: Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Kristrún Lind Birgisdóttir formaður …
Frá undirritun samningsins: Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Kristrún Lind Birgisdóttir formaður SKA og Fjalar Úlfarsson formaður Andrésarnefndar. Mynd/akureyri.is

Á miðvikudag var skrifað undir samning Akureyrarbæjar og Skíðafélags Akureyrar um Andrésar andar leikana 2022.

Andrésar andar leikarnir fara fram í Hlíðarfjalli og eru fyrir börn á aldrinum 4-15 ára. Sérstök Andrésarnefnd Skíðafélags Akureyrar sér um framkvæmd mótsins.

Hér er um að ræða eitt stærsta skíðamót landsins með um 1.000 keppendum ár hvert. Þeim fylgja þjálfarar, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 2.500-3.000 manns sæki leikana.

Andrésar Andar leikarnir fara að jafnaði fram frá miðvikudegi til laugardags í apríl, í sömu viku og sumardagurinn fyrsti.

Nýjast