13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Ríkið styrkir Eurovisionsafnið
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum nýverið að styrkja uppbyggingu Eurovisionsafns á Húsavík. Styrkurinn nemur um 2 milljónum króna. Stefnt er að opnun safnsins í maí nk. á 65 ára afmæli Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Könnunarsögusafnið á Húsavík stendur fyrir opnun Eurovisionsafnsins í samstarfi við Húsavíkurstofu, RÚV, Samband evrópskra sjónvarpsstöðva og Netflix.