20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Rekstarniðurstaða Akureyrarbæjar betri en búist var við
„Róðurinn hefur verið þungur síðustu árin en með samhentu átaki er okkur að takast að snúa dæminu við og ég sé ekki betur en að nú horfi allt til betri vegar. Með ráðdeild og styrkri fjármálastjórn skilum við betri niðurstöðu en á horfðist og það er auðvitað af hinu góða," segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri á vefsíðu sveitarfélagsins.
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta Akureyrarbæjar fyrri hluta ársins 2023 var nokkru betri en áætlun hafði gert ráð fyrir eða sem nemur 606 milljónum króna. Niðurstaðan var neikvæð um 1.196,8 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir að rekstrarhalli yrði 1.802,4 milljónir á tímabilinu.
Ásthildur segir að miðað við rekstrarumhverfi sveitarfélaga á Íslandi í dag hljóti þetta að teljast viðunandi niðurstaða.
Tekjur umfram áætlun
Tekjur samstæðunnar voru meiri en áætlun gerði ráð fyrir, samtals 16.242 milljónir króna, en gert var ráð fyrir 15.217 milljónum. Þá voru skatttekjur líka umfram áætlun sem og tekjur frá Jöfnunarsjóði og aðrar tekjur. Tekjur tímabilsins eru samtals 1.025 milljónum króna hærri en áætlun hafði gert ráð fyrir.