Ragga Rix sendir frá sér nýtt lag
Ragnheiður Inga Matthíasdóttir, 14 ára Akureyringur, eða Ragga Rix eins og hún kallar sig, sigraði Rímnaflæði 2021 með laginu ,,Mætt til leiks”.
Nú fylgir hún sigrinum eftir með nýju lagi, ,,Bla bla bla”
,,Lagið er um hvernig það er að vera unglingur í dag, bodyshaming, eitruð vinasambönd og síma veruleikann,” segir Ragnheiður og bætir við: „Það er líka virkilega gaman að vera unglingur og mikið af skemmtilegum tækifærum, ég hvet alla unglinga til að vera skapandi.”
Lagið má hlusta á í spilaranum hér að neðan: