Rafhleðslustöð tekin í notkun á Þórshöfn

Fyrsti viðskiptavinurinn var Hildur Stefánsdóttir ferðaþjónusturekandi í Holti og rafbílaeigandi. My…
Fyrsti viðskiptavinurinn var Hildur Stefánsdóttir ferðaþjónusturekandi í Holti og rafbílaeigandi. Mynd/ Langanesbyggð.is

Í gær var vígð fyrsta rafhleðslustöðin fyrir bíla á Þórshöfn.

Karen Konráðsdóttir rekstrarstjóri N1 skálans á Þórshöfn hafði veg og vanda að uppsetningu stöðvarinnar við skálann. Það var Langanesbyggð sem lagði til stöðina sem sveitarfélagið fékk að gjöf frá Orkusölunni. Fyrir eru í sameinuðu sveitarfélagi rafhleðslustöðvar við Svalbarðsskóla og við Grástein Guesthouse í Holti.

Fyrsti viðskiptavinurinn var Hildur Stefánsdóttir ferðaþjónusturekandi í Holti og rafbílaeigandi.

Nýjast