Ráðið hefur verið í stöðu rekstrarstjóra Orkuveitu Húsavíkur

Norðurþing hefur ráðið Benedikt Þór Jakobsson í starf rekstrarstjóra Orkuveitu Húsavíkur ohf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurþingi.

Benedikt

Benedikt er með B.Sc. próf í véltæknifræði frá VIA University College Horsens, í Danmörku og A.P. gráðu í framleiðslufræði frá sama skóla. Einnig hefur hann lokið sveinsprófi í pípulögnum. Benedikt Þór starfaði við pípulagnir frá 2005 – 2008 hjá Bunustokki ehf. í Kópavogi og aftur frá 2013 – 2014 hjá Alhliða pípulögnum sf. áður en hann tók við starfi hjá Veitum ohf. árið 2014.

Hjá Veitum hefur Benedikt sinnt bæði verkefnastjórastöðu og nú undanfarin þrjú ár verið teymisstjóri fageftirlits. Í störfum sínum undanfarin ár hefur Benedikt öðlast yfirgripsmikla þekkingu á starfsemi veitna, uppbyggingu og endurnýjun veitukerfa  og rekstri þeirra.  

Nýjast