Prófkjör hjá Sjálfstæðisflokki í lok mars 2022
Prófkjör við val á fjórum efstu sætum framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri við sveitarstjórnarkosningar næsta voru fara fram laugardaginn 26. mars 2022. Framboðsfrestur er til og með laugardags 26. febrúar 2022, kl. 16:00.
Tekið verður við framboðum á skrifstofu flokksins í Kaupangi v/Mýrarveg á milli kl. 14:00 og 16:00 þann dag. Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur, til viðbótar við þá sem bjóða sig fram, eftir að framboðsfresti lýkur.
Tveir af núverandi bæjarfulltrúum, þau Gunnar Gíslason og Eva Hrund Einarsdóttir hafa lýst yfir að þau gefi ekki kost á sér, en Þórhallur Jónsson sem einnig situr í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn gefur kost á sér í annað til þriðja sæti.