Pokavarpið hefur slegið í gegn

Gleðin er jafnan við völd þegar þátttakendur í verkefninu Virk efri ár mæta á æfinu í „pokavarpi“   …
Gleðin er jafnan við völd þegar þátttakendur í verkefninu Virk efri ár mæta á æfinu í „pokavarpi“ Mynd akureyri.is

„Pokavarp“ er ný íþrótt sem slegið hefur í gegn meðal þátttakenda í verkefninu Virk efri ár sem Akureyrarbær hefur veg og vanda að. Íbúum sem náð hafa 60 ára aldri býðst í verkefninu tækifæri til að hreyfa sig hitta fólk og skemmta sér.

Pokavarpið sem á ensku kallast „cornhole“ hefur verið spilað í Bandaríkjunum frá því seint á 19. öld í ýmis konar útgáfum. Árið 2005 voru svo stofnuð samtök þar í landi með það að leiðarljósi að staðla leikinn og bjóða upp á keppnismót. Skemmst er frá því að segja að leikurinn hefur náð gríðarlegum vinsældum vestan hafs.

Ófært þótti að kalla leikinn "cornhole" þegar hann er iðkaður hérlendis segir á vefsíðu Akureyrarbæjar þar sem greint er frá pokavarpinu, en verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ ákvað að kalla leikinn  „pokavarp" sem hefur mælst vel fyrir.

Kristinn Hólm hefur nú smíðað þar til gerða pokavarpspalla sem áhugasamir hafa aðgang að og hann pantar einnig sérhannaða keppnispoka að utan. Kristinn mætir jafnan á æfingar og kennir nýliðum reglurnar sem eru ekki flóknar. Æfingar fara fram kl. 11 á mánudagsmorgnum í Íþróttahöllinni við Þórunnarstræti (2. hæð) og þar er leikgleðin sannarlega við völd. 

Nýjast