Óskað eftir aukafundi í bæjarstjórn vegna fyrirhugaðrar sameiningar VMA og MA
Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi Samfylkingar segir frá því á Facebook að hún hafi óskað eftir aukafundi í bæjarstjórn Akureyrar vegna fyrirhugaðar sameiningar VMA og MA.
,,Ég hef óskað eftir aukafundi í bæjarstjórn Akureyrarbæjar vegna fyrirhugaðrar sameiningar MA og VMA. Aukafundi skal halda þegar forseti bæjarstjórnar eða bæjarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur bæjarstjórnarfulltrúa óskar þess. Ég vonast því til þess að a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa taki undir þessa ósk, enda um mikilvægt hagsmunamál samfélagsins að ræða. Bæjarstjórn ætti því án tafar að stíga inn í umræðuna af miklum þunga”.
Segir í færslu Hildu Jönu.