Óskað eftir athugasemdum við lokunum Göngugötunnar á Akureyri

Göngugatan á Akureyri. Mynd/Akureyri.is
Göngugatan á Akureyri. Mynd/Akureyri.is

Skipulagsráð Akureyrarbæjar vinnur nú að breytingum á reglum um lokanir gatna í miðbænum. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Fyrsti áfangi þeirrar vinnu eru tillögur að aukinni lokun þess hluta Hafnarstrætis sem kallast Göngugata og eru tveir kostir lagðir fram til kynningar:

1. Gatan lokuð alla daga í júní, júlí og ágúst frá klukkan 11-19.
2. Gatan lokuð sem hér segir:

  • júní: fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá klukkan 11-19.
  • júlí: alla daga frá klukkan 11-19.
  • ágúst: fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá klukkan 11-19.

Akureyrarbær óskar nú eftir viðbrögðum frá hagsmunaaðilum og íbúa við ofangreindum tillögum. Athugasemdum og tillögum má koma á framfæri hér.

Nýjast