Orkusalan gefur Norðurþingi rafhleðslustöð
Í vikunni komu starfsmenn Orkusölunnar færandi hendi í stjórnsýsluhús Norðurþings á Húsavík.
Tilgangur þeirra var að færa Norðurþingi rafhleðslustöð fyrir ökutæki að gjöf en Orkusalan gefur öllum sveitarfélögum eina slíka stöð.
Á heimasíðu Norðurþings segir að sveitarfélagið fagni þessari gjöf sem mun verða sett upp sem fyrst, við stjórnsýsluhúsið á Húsavík.